Um RIMC
Framundan er ein glæsilegasta Reykjavik Internet Marketing Conference (RIMC) ráðstefna sem haldin hefur verið. Áhersla verður lögð á stafrænamarkaðsetningu á krossgötum.
Eins og venja er hefur verið leitast við að finna fyrirlesara sem fjalla um málefni sem brenna á íslensku markaðsfólki.
Ráðstefnan mun m.a. fjalla um:
- Vefstefnumótun og uppsetningu
- Leitarvélabestun og félagsmiðla (e. search and social)
- Uppbyggingu efnis á vefsíðum
- Markaðssetningu í gegnum snjallsíma
- Blöndun á hefðbundnum markaðssamskiptaleiðum og netmarkaðssamskiptaleiðum
- Vefgreiningu
- Auglýsingar á netinu
Lesið dóma og sjáið myndir:
Spurt og svarað
Miðaverðið fyrir RIMC 2024 er 24.900 kr. í forsölu. Meðlimir ÍMARK, SKÝ og SVEF fá 20% afslátt. Hafið samband við okkur fyrir frekari upplýsingar á rimc@rimc.is, eða í síma 510 9000. Við verðum með takmarkað magn miða í forsölu á besta verði.
miðasala fer fram hér
Samstarfsaðilar og ýmis félagasamtök fá sérstakan afslátt. Meðlimir ÍMARK, SVEF og Sky fá slíkan afslátt.
Hafðu samband við starfsfólk í gegnum netfangið rimc@rimc.is, eða í síma 510 9000.
Hún fer fram þann 26. september 2024, frá klukkan 9:00 til 17:00 á Berjaya Reykjavik Natura Hotel.
Nei, þetta er markaðsráðstefna og höfðar til breiðs hóps fólks með allskonar þekkingu. Hún er fyrir hvern þann sem óskar eftir fleiri heimsóknum á vefsíðu sína og/eða vill öðlast betri þekkingu á markaðssetningu og samskiptum á netinu.
Hannar þú vefsíður? Uppsetning og innihald vefsíðunnar getur haft úrslitaáhrif á fjölda heimsókna frá leitarvélum.
Starfar þú við markaðssetningu á netinu? Þá er þetta rétta ráðstefnan fyrir þig.
Ráðstefnan er auk þess frábær vettvangur til þess að kynnast grunnatriðum í markaðssetningu á netinu, frá fólki í fremstu röð í bransanum. Ef þú telur að internetið gæti gegnt mikilvægu hlutverki í markaðsstarfi í þínu fyrirtæki, þá er þetta ráðstefna fyrir þig!
Smelltu á flipann „Fyrirlesarar“ hér að ofan. Mundu að dagskráin getur breyst með skömmum fyrirvara af ófyrirséðum ástæðum, sem við getum ekki tekið ábyrgð á.
Þú getur spurt beint eða í gegnum fundarstjóra. Einnig er mögulegt að skrifa spurningar niður og koma þeim til fundarstjóra. Síðast en ekki síst er mögulegt að senda inn spurningar fyrir fram með tölvupósti á rimc@rimc.is, eða í síma 510 9000 eða í gegnum twitter/X @RIMConference og er # fyrir RIMC 2024 #RIMC24..
Ekkert… nema e.t.v. peninga fyrir mat og drykk.
Já, það verður léttur morgunverður í boði. Kaffi og te verður í boði yfir daginn.
Já, hádegishlé og stutt hlé á milli fyrirlestra.
Í lokin verður kokteilboð fyrir ráðstefnugesti. Frábært tækifæri til að hitta fyrirlesarana, kynnast fólki, deila hugmyndum, stækka tengslanet sitt og skemmta sér!
Vinsamlega athugaðu miðana þína, hvort réttar upplýsingar komi þar fram. Ekki er alltaf hægt að laga mistök við miðakaup eftirá.
Ef þú vilt afbóka af einhverjum ástæðum, hafðu þá samband við skráningardeild okkar með tölvupósti á rimc@rimc.is, eða í síma 510 9000 fyrir 19. september 2024.