20th ANNIVERSARY

REYKJAVIK
INTERNATIONAL
MARKETING
CONFERENCE

Markaðsráðstefnan RIMC – Reykjavík International Marketing Coference verður haldin þann 26. september nk. en hún fagnar 20 ára afmæli á þessu ári. Sem fyrr er markmið ráðstefnunnar að auka þekkingu og kynna okkur allt það nýjasta úr heimi stafrænnar markaðssetningar, en þetta árið verður m.a. lögð áhersla á hvernig tilkoma gervigreindar hefur gjörbreytt leiknum.



Aðalfyrirlesararnir sex eru framúrskarandi en þau koma frá heimsþekktum stórfyrirtækjum á borð við Google, IKEA, Getty Images og TBWA, auk stafrænna markaðsráðgjafa sem meðal annars hafa unnið fyrir tískugeirann og með risum á borð við Vodafone og eBay. Þau munu sýna okkur raundæmi um það hvernig tæknin hefur gjörbylt starfi þeirra og starfsumhverfi og hversu mikilvæg nýsköpun á sér stað í tengslum við þær breytingar.

Að loknum fyrirlestrum verða svo líflegar pallborðsumræður þar sem fleiri sérfræðingar blandast í hópinn. Við fræðumst um þróun í gervigreind, snjalltækjum, samfélagsmiðlum, leitarvélum og öllu því sem snýr að stafrænni markaðssetningu. Viðburður sem markaðsfólk má ekki missa af!



Tryggðu þér miða tímanlega.

FYRIRLESARAR

Danny Sullivan
Mikko Pietilä
Michael Francello
Aleyda Solís
Arnoldo Cabrera
Nick Wilsdon

Fundarstjórn

Pallborð

Pallborð

DAGSKRÁIN ER GLÆSILEG

Við fáum til okkar firnasterka fyrirlesara sem öll eru miklir reynsluboltar í stafrænni markaðssetningu og starfa fyrir risafyrirtæki á heimsvísu.

SKOÐA DAGSKÁ