Chief Strategy Officer hjá Ceedr Nordic

Ráðstefnustjórn verður í höndum Kristjáns Más, sem fagnar 30 ára ferli í stafrænni markaðssetningu í ár. Hann gerði sína fyrstu vefsíðu árið 1996 en færði sig yfir í markaðssetningu á netinu árið 1998 og stofnaði ráðstefnuna RIMC árið 2004, þar sem hann valdi jafnframt fyrirlesarana.

Kristján er brautryðjandi í stafrænni markaðssetningu og hefur á ferli sínum stýrt alþjóðlegum markaðsverkefnum, þar á meðal Destination Canada, Expedia, Vodafone og Symantec. Hann er meðhöfundur fyrstu íslensku bókarinnar um stafræna markaðssetningu og jafnframt meðhöfundur bókanna Global Search Engine Marketing og Global Social Media Marketing.

Kristján er menntaður í kerfisfræði, auk þess að vera með gráður í markaðssetningu á netinu frá University of British Columbia (UBC), alþjóðamarkaðsfræði frá Thunderbird University og diplóma í stratískir hugsun frá Cambridge University.