Elín Elísabet Jóhannsdóttir Löve starfar sem fræðslustjóri Þjóðkirkjunnar og hefur unnið lengi við alls kyns námsefnisgerð, bæði fyrir kirkjuna og Námsgagnastofnun, sem nú heitir Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Einnig hefur hún skrifað töluvert af barnabókum. Þá ritstýrði hún um skeið bæði barnablaðinu Æskunni og unglingablaðinu Smelli og gerði einnig nokkra þætti fyrir Stundina okkar.
Elín Elísabet er uppeldis-, menntunar- og fjölskyldufræðingur með MA-gráðu í jákvæðri sálfræði. Hún lærði auk þess fjölmiðlun við HÍ og tók kúrsa í guðfræði. Þá hefur hún einnig menntað sig í og lagt stund á markþjálfun og teymisþjálfun og hefur víða haldið fyrirlestra þar sem hún vinnur með hugmyndir og kenningar úr jákvæðri sálfræði og fjölskyldufræðum.