Snæbjörn Ragnarsson er sköpunarstjóri (Creative Director) á auglýsingastofunni Pipar\TBWA og hefur starfað þar í 14 ár. Hann hefur komið að fjölmörgum verðlaunuðum auglýsinga- og mörkunarverkefnum á undanförnum fyrir fyrirtæki á borð við Toyota, KFC, Bónus, Sjóvá og Samgöngustofa, svo eitthvað sé nefnt – og tók drjúgan þátt í endurmörkunarverkefni Þjóðkirkjunnar á síðasta ári. 

Snæbjörn er auk þess afkastamikill tónlistarmaður og textahöfundur. Hann er meðlimur í hljómsveitunum Skálmöld, Ljótu hálfvitunum og Innvortis og hefur gefið út yfir 20 breiðskífur og spilað á yfir 1000 tónleikum víðsvegar um heim. Með bróður sínum stofnaði hann hlaðvarpsveituna Hljóðkirkjuna, sem hefur gefið út aragrúa vinsælla hlaðvarpsþátta, þar á meðal Drauga fortíðar, Snæbjörn talar við fólk og Bestu plötuna. Þá hefur hann einnig fengist við leikritaskrif, sjónvarpsþáttagerð, skrifað skáldsögu og var einn af stofnendum Leikhópsins Lottu. Auk auglýsingaverðlauna hefur hann hlotið fjölda viðurkenninga fyrir störf sín, þar á meðal Íslensku tónlistarverðlaunin og Grímuna – íslensku leiklistarverðlaunin.