Þó stutt sé frá síðustu heimsókn, þá hefur margt breyst hjá Íslandsvininum Arnoldo Cabrera, sem er einn af lykilmönnum IKEA Group í markaðsmálum. Gervigreind hefur haft mikil áhrif á það hvernig hann vinnur með CRO, SEO og SEM og mun hann skoða með okkur hvaða áhrif gervigreind hefur haft.
Auk starfa sinna hjá IKEA hefur Arnoldo stýrt stafrænum markaðsherferðum fyrir alþjóðleg vörumerki á borð við Full Tilt og Secunia með góðum árangri og lagt sitt af mörkum til aukinnar vörumerkjavitundar, betri frammistöðu og sterkari upplifunar viðskiptavina.
Arnoldo er margtyngdur og býr yfir traustri reynslu í stafrænni markaðssetningu með áherslu á mælanlegan árangur, stefnumótandi hagræðingu og frumlegar stafrænar lausnir.